BRAVO LEIÐIN
Þrír þættir - ein vegferð
BRAVO leiðin er okkar nálgun að markvissri skólaþróun, mótuð í samstarfi við íslenska skóla. Hún tengir saman faglega forystu, gæðakennslu og markvissar umbætur í eina samfellda vegferð.
01 / FAGLEG FORYSTA
Hvert viljum við fara?
Skýr sýn, sameiginleg ábyrgð og lærdómsmenning skapa grunn að markvissri skólaþróun.
02 / GÆÐAKENNSLA
Hvernig gerum við góða kennslu betri?
Sameiginlegur skilningur, markvisst innlit og fagleg ígrundun þróa kennsluna.
03 / MARKVISSAR UMBÆTUR
Hvað þarf að bæta – og tekst það?
Innra mat, greining, umbætur og eftirfylgni halda þróunarstarfinu á réttri leið.
BRAVO LEIÐIN Í FRAMKVÆMD
Þekking, verkfæri og faglegur stuðningur
BRAVO leiðin tengir saman kerfi, þekkingu, þróunarramma og faglegan stuðning sem hjálpa skólum að vinna markvisst að skólaþróun.
KERFIÐ
BRAVOLesson
Kerfið styður skóla í að skipuleggja, meta, greina, bæta og fylgja eftir - allt í einu kerfi.
SKIPULEGGJA - META - GREINA - BÆTA
- FYLGJA EFTIR - SKRÁ OG SKÝRA FRÁ
Innra mat · Gæðaviðmið · Kennsluinnlit · Umbótaáætlanir · Eftirfylgni · Innra matsskýrsla
HANDBÓKIN
Markviss skólaþróun
Hagnýt handbók fyrir skólastjórnendur
Hagnýt leiðsögn fyrir skólastjórnendur um faglega forystu, gæðakennslu og markvissar umbætur.
Bókin tengir þessa þrjá þætti saman og sýnir hvernig hægt er að vinna markvisst að skólaþróun í daglegu starfi.

BÓKIN OG ÞRÓUNARRAMMINN
STiP - Kennsla sem leiðir til náms
Byggt á rannsóknum um árangursríka kennslu
Sameiginlegur rammi sem styður skóla við að skilgreina, meta og þróa gæði kennslu.
STiP nýtist við undirbúning, innlit í kennslustundir, faglega ígrundun og samtal um kennslu.

BRAVO LEIÐSÖGN
Faglegur stuðningur við framkvæmdina
Stuðningur við umbótastarfið yfir skólaárið
Á þremur lykiltímum skólaársins rýnum við stöðu umbótastarfsins með stjórnendateyminu, fylgjum eftir því sem hefur verið ákveðið og hjálpum til við að skýra áherslur og næstu skref.

Saman styðja BRAVOLesson, handbókin, STiP og BRAVO Leiðsögn við vegferð skólans – frá faglegri forystu og gæðakennslu yfir í markvissar umbætur.
BRAVOLesson í íslensku skólastarfi
Skólar um allt land nýta BRAVOLesson til að styðja við innra mat, gæðastarf og markvissar umbætur.

Dæmisögur
Reynsla skóla af BRAVOLesson í framkvæmd



Viltu panta kynningu?
Fáðu kynningu á BRAVOLesson og sjáðu hvernig það styður við innra mat, umbætur og eftirfylgni í þínum skóla.
