BRAVO teymið

Sérfræðingar með brennandi áhuga á skólastarfi og sjálfbærni


Vilborg Einarsdóttir

Stofnandi og framkvæmdastjóri BravoEarth

Vilborg með MSc gráðu í Stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og Verslunarháskólanum í Árósum og B.ed. frá Kennaraháskóla Íslands. Er sérfræðingur í breytingastjórnun og hefur bætt við sig námskeiðum í HÍ í umhverfis- og gæðastjórnun (í diplómanámi). Hún er meðstofnandi og fyrrverandi forstjóri Mentors. 

Vilborg stjórnar þróun og aðlögun BRAVOLesson að íslensku skólastarfi en auk þess þróar BravoEarth sjálfbærnistjórnunarkerfi sem markaðssett er undir vöruheitinu Klappir IRO í samstarfi við Klappir Grænar lausnir.

Vilborg hefur mikla reynslu bæði úr menntageiranum og atvinnulífinu auk þess að hafa haldið fjölda fyrirlestra bæði hérlendis og erlendis í gegnum árin. Hún situr í stjórn Klappa Grænna lausna og Félagi háskólakvenna auk þess að hafa verið fulltrúi í Háskólaráði Háskóla Íslands og setið í stjórn Íslandsstofu, Tækniþróunarsjóðs og Samtaka iðnaðarins. Vilborg var sæmd hinni íslensku fálkaorðu árið 2012 og var kjörin FKA kona ársins 2010. 


Mats Rosenkvist

Stofnandi og framkvæmdastjóri BRAVOLesson

Mats er stofnandi og framkvæmdastjóri Successful schools og BRAVOLesson í Svíþjóð. Mats er sérfræðingur í breytingastjórnun og innleiðingu ferla. Hann er höfundur bókarinnar Modellen sem er aðferðafræði til að umbylta skólastarfi með aukinni gæðastjórnun og bættri kennslu. Modellen byggir á alþjóðlegum rannsóknum á árangursríkum skólum. 

Mats er einnig meðhöfundur bókarinnar Skilful Teaching in Practice (STiP) sem er efni sem einnig er útfært í matsform til að styðja við faglega endurgjöf til kennara í BRAVOLesson. Fagleg kennsla í framkvæmd sem leiðir til náms.


Derventio Education

Hugbúnaðarþróun og þjónusta


BRAVOLesson  er þróað í Bretlandi af fyrirtækinu Derventio Education sem einnig sér um tæknilega þjónustu.

BravoEarth ehf. á dreifingarrétt á BRAVOLesson á Íslandi í samvinnu við BRAVOLesson í Svíþjóð.