BRAVOLesson

Kerfið fyrir markvissa skólaþróun

BRAVOLesson styður skóla við að skipuleggja innra mat, meta gæði skólastarfs, greina niðurstöður, stýra umbótum og fylgja árangri eftir – allt á einum stað.


EITT KERFI

Fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Ólík uppsetning og faglegt innihald – sama markvissa umbótaferlið.

BRAVOLesson í framkvæmd

Eitt samfellt vinnuferli frá skipulagningu innra mats til umbóta og innra matsskýrslu.

SKIPULEGGJA

Frá langtímasýn að áætlun skólaársins

Innra matið er skipulagt til lengri tíma og útfært í skýrri áætlun fyrir hvert skólaár.

META

Mismunandi mat – sameiginleg skráning

Gæði skólastarfs eru metin frá ólíkum sjónarhornum og niðurstöðum haldið saman á einum stað.

GREINA

Frá niðurstöðum að skýrum tækifærum til umbóta

Niðurstöður eru greindar, heildarmyndin dregin fram og mikilvægustu tækifærin til umbóta forgangsraðuð.

BÆTA

Frá tækifærum til umbóta til markvissra aðgerða

Niðurstöður leiða til skýrra umbótaverkefna með ábyrgð, tímaramma og viðmiðum um árangur.

FYLGJA EFTIR

Frá aðgerðum að sýnilegum árangri

Staða umbótaverkefna og framvinda er sýnileg og auðvelt að fylgja eftir hvort aðgerðir skila þeim árangri sem stefnt var að.

SKÝRA FRÁ

Innra matsskýrslan er unnin jafnt og þétt

Áætlanir, niðurstöður og umbætur eru skráðar jafnt og þétt yfir skólaárið og auðvelda skólastjórnendum að vinna innra matsskýrsluna.

Reynsla úr skólastarfi

„BRAVOLesson hjálpar mér sem stjórnanda að skipuleggja betur hvernig við verkefnastýrum faglegum verkefnum. Verkefni í umbótaáætlun eru opnað reglulega á fundum þar sem við förum yfir og fylgjum eftir verkefnum.“
— Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla

Ávinningur

Hvað fær skólinn með BRAVOLesson?

Betri yfirsýn

Áætlanir, mat, niðurstöður og umbætur tengjast saman á einum stað.

Markvissara innra mat

Skýr umgjörð hjálpar skólanum að vinna innra mat skipulega yfir skólaárið.

Niðurstöður sem leiða til umbóta

Auðveldara verður að sjá hvað gengur vel, hvað þarf að bæta og forgangsraða næstu skrefum.



Skýrari eftirfylgni

Ábyrgð, aðgerðir og framvinda umbótaverkefna verða sýnileg og auðveldara að fylgja þeim eftir.

Einfaldari vinna við innra matsskýrslu

Gögn, niðurstöður og umbætur eru aðgengileg þegar skólastjórnendur vinna skýrsluna.

Sterkara faglegt samstarf

Sameiginlegar niðurstöður skapa grunn fyrir faglegt samtal og samstarf um umbætur í skólastarfinu.

NÝTT - BRAVO leiðsögn

Nú geta skólar bætt BRAVO Leiðsögn við BRAVOLesson.

Við rýnum stöðu skólans í kerfinu á þremur lykiltímum skólaársins, tökum stöðuna með stjórnendateyminu og hjálpum til við að skýra áherslur og næstu skref.

Skoða BRAVO Leiðsögn og verð

HAUST - Leggjum línurnar

Við byrjum skólaárið saman. Förum yfir stöðu skólans, áherslur í innra mati og umbótastarfi og hjálpum stjórnendateyminu að setja upp raunhæfa vegferð í BRAVOLesson.



Innifalið: undirbúningur fyrir fundinn, rýni á stöðu skólans í BRAVOLesson, leiðsagnarfundur með stjórnendateymi og skýr næstu skref.

VETUR - Tökum stöðuna

Þegar skólaárið er komið vel af stað skoðum við hvað hefur gerst. Hvað er að ganga vel? Hvað hefur setið á hakanum? Hvar þarf að skerpa fókusinn?


Innifalið: rýni á framvindu í BRAVOLesson, leiðsagnarfundur og tillögur að áherslum fyrir seinni hluta skólaársins.

VOR - Lokum hringnum

Við hjálpum stjórnendateyminu að draga saman árið, rýna árangur umbóta og undirbúa næsta hring innra mats og skólaþróunar.


Innifalið: rýni á stöðu umbóta og innra mats, leiðsagnarfundur og stuðningur við að ljúka árinu og leggja grunn að næsta skólaári.

BRAVO Leiðsögn er valkvæð viðbótarþjónusta

við BRAVOLesson og er ekki innifalin í ársáskrift.


Skoða BRAVO Leiðsögn og verð

Fyrir nýja skóla - Innleiðing BRAVOLesson

Við hjálpum ykkur að byrja rétt


Þegar skóli tekur BRAVOLesson í notkun aðstoðum við stjórnendateymið við að setja kerfið upp og tengja það við innra mat og umbótastarf skólans.



Markmiðið er að skólinn geti fljótt tekið BRAVOLesson í notkun og haldið áfram vinnunni sjálfstætt.

BRAVOLesson


1. Undirbúningur
Við förum yfir uppbyggingu skólans, notendur og þær áherslur sem skólinn vill vinna með.


2. Uppsetning og kynning
BRAVOLesson er sett upp fyrir skólann og stjórnendateymið fær leiðsögn um helstu verkfæri og vinnuferli.


3. Vinnan hefst
Skólinn byrjar að skipuleggja innra mat, skrá niðurstöður og vinna með umbætur í BRAVOLesson.

Góður grunnur frá upphafi.

Rétt uppsetning og skýr ferli í upphafi skapar traustan grunn fyrir árangursríkt innra mat og markvissar umbætur.

Vilji skólinn áframhaldandi stuðning?

Vilji skóinn áframhaldandi fagleggan stuðning yfir skólaárið er hægt að bæta BRAVO Leiðsögn við - faglegri viðbótarþjónustu með þremur stuðningspunktum yfir árið.

Hvernig getum við aðstoðað

Fáðu kynningu á kerfinu og sjáðu hvernig BRAVOLesson getur stutt markvisst þróunarstarf í þínum skóla.

Viltu panta kynningu?
Fáðu kynningu á kerfinu og sjáðu hvernig það styður við innra mat, umbætur og eftirfylgni í þínum skóla.

Hafa samband