MARKVISS SKÓLAÞRÓUN

Frá faglegri forystu til betri kennslu og markvissra umbóta


Skólaþróun byggir á skýrri forystu, sameiginlegum skilningi á gæðum og markvissu umbótaferli sem er fylgt eftir.


Bókin Markviss skólaþróun er hugsuð til að styðja skólastjórnendur og innra matsteymi við að leiða þessa vegferð í eigin skóla.

Panta handbók

Þrír kaflar - ein vegferð

Markviss skólaþróun tengir saman þrjá þætti sem þurfa að vinna saman ef umbætur eiga að skila sér í daglegu starfi skólans.

1. Fagleg forysta
Skýr sýn, sameiginleg stefna og lærdómsmenning sem styður þróun starfsins.



2. Gæðakennsla
Sameiginlegur skilningur á gæðum kennslu og markviss þróun þess sem gerist í kennslustofunni.


3. Markvissar umbætur
Innra mat, greining og eftirfylgni sem gera umbætur að samfelldum hluta skólastarfsins.


Hagnýt handbók fyrir skólastjórnendur

Markviss skólaþróun er skrifuð fyrir skólastjórnendur og innra matsteymi sem vilja vinna skipulega að þróun skólastarfs.


Bókin tengir saman faglega forystu, gæði kennslu og innra mat í eina samfellda vegferð – frá því að móta sameiginlega sýn og skoða stöðu skólans yfir í að ákveða umbætur og fylgja þeim eftir.


Hugsuð til að vera notuð – ekki bara lesin.


Lesa → Ræða → Nýta

Panta handbók

1. FAGLEG FORYSTA
Leiða þróunina

Markviss skólaþróun byrjar hjá stjórnendum. Í fyrsta kafla er fjallað um hvernig skýr sýn, sameiginleg stefna og sterk lærdómsmenning skapa grunn að þróun skólastarfs.

Hvert viljum við fara – og hvernig leiðum við fólkið okkar þangað?

2. GÆÐAKENNSLA

Þróa það sem gerist í kennslustofunni

Kjarni skólaþróunar er kennslan. Kaflinn fjallar um hvernig skapa má sameiginlegan skilning á gæðakennslu og þróa hana með kerfisbundnum kennsluinnlitum, faglegri ígrundun og endurgjöf.



STiP – Kennsla sem leiðir til náms styður þessa vinnu með rannsóknamiðuðum þróunarramma og sameiginlegum viðmiðum um gæði kennslu.

Hvernig gerum við góða kennslu enn betri?

3. MARKVISSAR UMBÆTUR

Frá mati til umbóta

Innra mat skilar mestum árangri þegar niðurstöðurnar leiða til aðgerða. Kaflinn leiðir stjórnendur í gegnum umbótahringinn – að skipuleggja, meta, greina, bæta, fylgja eftir og segja frá árangri.



BRAVOLesson styður ferlið með verkfærum til að halda utan um innra mat, niðurstöður, umbótaáætlanir, eftirfylgni og innra mats skýrslu.

Frá upplýsingum um skólastarfið að markvissum umbótum.

Bókin fylgir með
Allir skólar sem gerast viðskiptavinir fá eitt eintak af Markvissri skólaþróun.

Hægt er að panta fleiri eintök fyrir stjórnendateymi og innra matsteymi.

Panta auka eintök