Markviss skólaþróun
Betri kennsla. Aukinn námsárangur. Betri skólar.
BRAVO LEIÐIN
Þrír þættir - ein vegferð
BRAVO leiðin er okkar nálgun að markvissri skólaþróun, mótuð í samstarfi við íslenska skóla. Hún tengir saman faglega forystu, gæðakennslu og markvissar umbætur í eina samfellda vegferð.
BRAVO LEIÐIN Í FRAMKVÆMD
Þekking, verkfæri og faglegur stuðningur
BRAVO leiðin verður að framkvæmd með þekkingu, verkfærum og faglegum stuðningi fyrir skólastjórnendur og skóla.
BRAVOLesson í íslensku skólastarfi
Skólar um allt land nýta BRAVOLesson til að styðja við innra mat, gæðastarf og markvissar umbætur.

Dæmisögur
Reynsla skóla af BRAVOLesson í framkvæmd

Í Rimaskóla í Reykjavík er innra mat hluti af daglegu fagstarfi þar sem kennarar og stjórnendur vinna saman að því að efla gæði kennslu og náms. Skólinn nýtir BRAVOLesson til að skipuleggja innlit í kennslustundir, skrá niðurstöður og fylgja umbótum eftir á markvissan hátt. Allt starfsfólk tekur þátt í ferlinu sem fagþróunarteymi leiðir – með sameiginlegri sýn á stöðugar umbætur og faglegt nám allra. „BravoLesson hjálpar mér sem stjórnanda að skipuleggja betur hvernig við verkefnastýrum faglegum verkefnum. Verkefni í umbótaáætlun eru opnað reglulega á fundum þar sem við förum yfir og fylgjum eftir verkefnum.“ — Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla.

Leikskólar Garðabæjar innleiddu BRAVOLesson í alla sína leikskóla í janúar 2025 til að efla enn frekar sitt faglega starf. Í kjölfarið fór fram samræmt mat í öllum leikskólum. Í framhaldinu gat hver og einn leikskóli valið sína þætti til að meta. Hér eru dæmi frá fjórum leikskólum í Garðabæ sem hafa á síðustu mánuðum nýtt BRAVOLesson markvisst í sínu innra mati. Hver leikskóli valdi sína nálgun, en öll ferlin byggja á faglegri samvinnu, skýrri skráningu og skýrri yfirsýn sem nýtist beint í umbótastarfi.

Á skólaárunum 2022–2025 sameinuðu grunnskólar í Reykjavík austur krafta sína til að efla innra mat og faglegt skólastarf. Verkefnið spannar 15 skóla í Grafarvogi, Grafarholti, Árbæ og á Kjalarnesi og hafði það að markmiði að gera innra mat að lifandi og reglulegum hluta skólastarfsins. Í verkefninu var unnið markvisst með uppfærð gæðaviðmið Menntamálastofnunar. Áhersla var lögð á að þróa faglegt samtal innan skólanna, virkja kennara til þátttöku í mati á eigin starfi og skapa sameiginlega sýn á árangur og umbætur. Þjálfun, handleiðsla og stuðningur voru veitt á öllum stigum með það að markmiði að styrkja sjálfstæði skólanna í innra mati og umbótavinnu. BRAVOLesson var innleitt sem lykilverkfæri í verkefninu og gerði skólunum kleift að halda utan um sjálfsmat, innlit í kennslustundir og umbótaáætlanir á einum stað, auk þess að auðvelda gerð greinargerða fyrir innra matið. Með skýru skipulagi, sameiginlegri vinnu og markvissri notkun BRAVOLesson hefur innra mat orðið að sýnilegu og áhrifaríku verkfæri fyrir faglega þróun innan hvers skóla. Þannig hefur verkefnið skapað sterkan grunn að áframhaldandi umbótastarfi og styrkt lærdómssamfélög skólanna með markvissum hætti. Hér að neðan má nálgast dæmisögu (e. case study) um verkefnið með skólunum í Reykjavík austur.