Grunnskólar í Reykjavík austur - Innra mat og BRAVOLesson
Vilborg Einarsdóttir
Grunnskólar í Reykjavík austur -
Á skólaárunum 2022–2025 sameinuðu grunnskólar í Reykjavík austur krafta sína til að efla innra mat og faglegt skólastarf. Verkefnið spannar 15 skóla í Grafarvogi, Grafarholti, Árbæ og á Kjalarnesi og hafði það að markmiði að gera innra mat að lifandi og reglulegum hluta skólastarfsins.
Í verkefninu var unnið markvisst með uppfærð gæðaviðmið Menntamálastofnunar. Áhersla var lögð á að þróa faglegt samtal innan skólanna, virkja kennara til þátttöku í mati á eigin starfi og skapa sameiginlega sýn á árangur og umbætur. Þjálfun, handleiðsla og stuðningur voru veitt á öllum stigum með það að markmiði að styrkja sjálfstæði skólanna í innra mati og umbótavinnu.
BRAVOLesson var innleitt sem lykilverkfæri í verkefninu og gerði skólunum kleift að halda utan um sjálfsmat, innlit í kennslustundir og umbótaáætlanir á einum stað, auk þess að auðvelda gerð greinargerða fyrir innra matið. Með skýru skipulagi, sameiginlegri vinnu og markvissri notkun BRAVOLesson hefur innra mat orðið að sýnilegu og áhrifaríku verkfæri fyrir faglega þróun innan hvers skóla.
Þannig hefur verkefnið skapað sterkan grunn að áframhaldandi umbótastarfi og styrkt lærdómssamfélög skólanna með markvissum hætti.
Hér að neðan má nálgast dæmisögu (e. case study) um verkefnið með skólunum í Reykjavík austur.

Í Heiðarskóla hefur BRAVOLesson verið tekið í notkun á afar markvissan hátt, bæði á leikskóla- og grunnskólastigi, þar sem áhersla er lögð á samfellda og faglega þróun í takt við gæðaviðmið og stefnu skólans. Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar sýnir með skýrum hætti hvernig hægt er að: Nýta BRAVOLesson til að vinna faglegt og gagnadrifið innra mat á báðum skólastigum Þróa aðskildar en samræmdar umbótaáætlanir Beita leiðsagnarmati með reglubundnum innlitum Skapa heildstæða greinargerð sem nýtist í áframhaldandi þróun Endilega smellið á hnappinn hér að neðan til að lesa dæmisöguna um Heiðarskóla í Hvalfjarðasveit.

Leikskólar Garðabæjar innleiddu BRAVOLesson í alla sína leikskóla í janúar 2025 til að efla enn frekar sitt faglega starf. Í kjölfarið fór fram samræmt mat í öllum leikskólum. Í framhaldinu gat hver og einn leikskóli valið sína þætti til að meta. Hér eru dæmi frá fjórum leikskólum í Garðabæ sem hafa á síðustu mánuðum nýtt BRAVOLesson markvisst í sínu innra mati. Hver leikskóli valdi sína nálgun, en öll ferlin byggja á faglegri samvinnu, skýrri skráningu og skýrri yfirsýn sem nýtist beint í umbótastarfi.

Ingunnarskóli hefur markað sér skýra og faglega stefnu í innra mati og gæðastarfi. Í samstarfi við grunnskólana í Reykjavík austur og með notkun BRAVOLesson hefur skólinn þróað öfluga aðferð þar sem gögn, greining og umbætur eru samofin faglegu starfi kennara og stjórnenda. Nálgun skólans endurspeglar þann metnað sem felst í markmiðum laga um grunnskóla, þar sem gæði skólastarfs, umbætur og velferð eru í forgrunni. Sjá nánar dæmisögu hér að neðan um faglegt starf í Ingunnarskóla og hvernig skólinn nýtir sér BRAVOLesson í sínu gæðastarfi.

Í Borgaskóla í Reykjavík er markvisst unnið að því að efla gæði kennslu með því að byggja upp faglegt samtal og samræmt mat á kennsluháttum. Síðan 2022 hefur skólinn nýtt BRAVOLesson til að halda utan um innlit í kennslustundir og veita kennurum faglega endurgjöf í takt við áherslur leiðsagnarnáms og gæðaviðmið grunnskóla. Stjórnendur stofna innlit í kerfinu og skrá mat sitt beint í BRAVOLesson. Það sem áður var tímafrekt ferli með handvirkri skráningu og úrvinnslu, fer nú fram á einum stað með sjálfvirkri samantekt og mælaborði sem sýnir þróun yfir tíma. Kennarar fá sendan matsrammann fyrirfram og eru virkir þátttakendur í matinu – bæði með sjálfsmati og í samtali við stjórnendur að loknu innliti. Innleiðingin í Borgaskóla hefur skapað jákvæðan farveg fyrir faglegt samtal, sýnilega þróun og skýran ramma um gæði kennslu. Í kjölfarið hefur skólinn jafnframt innleitt jafningjamat kennara. „ Aðal ávinningurinn er að geta séð styrkleika og tækifæri til umbóta í kennslu – bæði yfir skólann sem heild og innan einstakra deilda, “ segir Árný Inga Pálsdóttir f.v. skólastjóri. „ Mælaborðið hjálpar okkur stjórnendum við að hrósa fyrir það sem vel er gert og vinna markvisst með það sem við getum bætt. “

Leikskólar Garðabæjar hafa hafið innleiðingu á BRAVOLesson – gæðakerfinu sem styður við innra mat, markvissa þróun og umbótastarf. Markmiðið er að styrkja faglegt starf, tryggja skýra yfirsýn yfir gæði og styðja við umbætur á skipulagðan og gagnadrifinn hátt. Í gegnum BRAVOLesson geta leikskólastjórar skipulagt og skráð sjálfsmat, innlit á deildir og greiningu á styrkleikum og tækifærum til umbóta. Nýtt mælaborð kerfisins veitir stjórnendum skýra yfirsýn yfir stöðu og framvindu – sem eykur festu í faglegu starfi og auðveldar eftirfylgni. Kerfið er aðlagað að leikskólaumhverfi Garðabæjar og verður mikilvægt tæki til að styðja við gæði leikskólastarfs í samræmi við viðmið og stefnu sveitarfélagsins. Það verður spennandi að fylgjast með leikskólunum í Garðabæ og þeirra faglega starfi.